k:' 47 JÓN GUNNARSSON fæddur á Völlum í Þistilfirði og ólst þar upp. Faðir hans var Gunnar Rafnsson; hann dó er Jón var en í æsku. Jón stjórnaði búinu meÖ móðir sinni eftir að hann komst á legg og fórst það vel. Vest- ur um haf fluttist hann stuttu eftir 1880, þá giftur Guð- nýu Valgerði Friðriksdóttir, systir Friðjóns Friðrikssonar og þeirra bræðra, Þau hjón ílutlust fyrst í Argylebygð- ina og nokkru síðar námu þau N. A. \ 30-8-13 i Hóla- bygðinni; síðar keypti Jón land nábúa síns; stundaði hann mikið hveitirækt og farnaðist vel. framar vonum, með stóra fjölskildu og ýms óhöpp er að höndum báru og voru honum kostnaðarsöm. Arið 1 894 fældust hest- ar með hann og hann stórslasaðist, brotnuðu báðir fætur hans og annar handleggurinn og síðar á árinu fótbrotn- aði dóttir hans. Tveim árum síðar sló haglél hveiti- uppskeru hans og eyðilagði hana á einni svipstundu. Mótlætið bugaði Jón ekki og hann hafði sig allvel áfram á næstu árum, þar til 1902 að hann varð að hætta búskap vegna heilsubilunar. I Glenboro og Argylebygð var hann næsta ár, en veturinn 1903-4 dó hann á bezta aldursskeiði. Börn þeirra hjóna eru hér talin: 1. Þórhild- ur, hún var tvígift, báðir hérlendirmenn, dó í Californíu fyrir nokkrum árum. 2, Guðlaug, gift Jóni Einarssyni, hún lezt 19 ára gömul; einkadóttir hennar, Fanny, ólst upp hjá ömmu sinni, afar-smávaxin kvenmaður, en harðger og gáfuð; braut hún sér leið til náms og varð kornung skólakennari með bezta orðstýr. Hún er gift hérlendum manni og á heima í Winnipeg. 3. Fanny, var lengi skólakennari, giftist J. A. Harvie, kaupmanni í Treherne, Man. 4. Dagmar, tvígift, báðir hérlendirmenn, nú dáin. 5. Salína, gift hérlendum manni, Moorehead og búa í Winnipeg. Allar voru þessar dætur þeirra fríðar og vel gefnar. Jón Gunnarsson var lítill maður vexti og snyrtilegur og vinsæll í sínu nágrenni. Einar Gunnarsson, ljósmyndasmiðu;r á Akureyri viS EyjafjörS er bróSir Jóns, talinn merkur maSur. GuSný ekkja Jóns er enn á lífi, nær áttræS og býr í Winnipeg. Hún hefir oft átt erfiða daga, verið bjartsýn og félagslynd og ram- íslenzk í anda.