48 EIRÍKUR SUMARLIÐASON nam land í Hólabygð- inni norðan við ána, hann var nyrðsti íslendingur í bygðinni. Eiríkur var ættaður úr Borgarfjarðarsýslu og hafði lært búfræði hjá Torfa í Ölafsdal á Islandi. Kona hans var Þorbjörg Jónsdóttir Sveinbjörnssonar frá Odds- stöðum í Lundarreykjadal í Borgarf.s,, væn kona og vel metin, dáin 10. okt. 1910. Þau hjón áttu börn er til manns hafa komist, kann eg ekki nöfn behra utan tveggja, I. Leifur (nú Summers, hefir hann lögfest bað ættarnafn), er hann einn af ráðsmönnum Eatons-félags- ins stóra í Winnipeg og 2. Ingibjörg, ekkja eftir Eymund Guðvaldsson Jónssonar, við ElfrosíSask.Eiríkur fluttist hingað til lands 1887 og var hann hér og bar áður enn hann kom í Hólabygðina. Þar var hann aðeins nokkur ár, hann var ekki hneigður fyrir búskap og átti fremur erfitt. Það greip hann æfintýralöngun og var hann einn af bsim sem fór til Klondyke i gull-leit laust fyrir alda- mótin og dvaldi bar um tíma en mun ekki hafa auðgast. Hann kom aftur en ílengdist hér ekki og flutti burt og var á ýmsum stöðum, mun allengi hafa verið í ísl. bygð- unum í Saskatchewan. Eiríkur var greindur maður og vel máli farinn og mannaður í betra lagi. Hann dó 25. nóv. 1933. INGÓLFUR ÁRNASON fæddur 1863 á Hömrum í Hrafnagilshrepp í Eyjafirði. Faðir hans var Markús ívarsson, ættaður úr Eyjafirðinum, en móðir Ingibjörg Sigurðardóttir, ættuð úr Skagafirði. Ingólfur kom til Canada 1 893, var fyrsta veturinnn í Selkirk hjá móður- systur sinni Sæunni Sigurðardóttir, móðir séra Hjartar Leó. Ingólfur kom til Glenboro 1894, var nokkur ár í bænum við algenga vinnu. Laust fyrir aldamótin nam hann N, A. i Sec. 30-8-13 í Hólabygðinni og bjó þar til ársins 1921 að hann seldi landið og flutti til Cypress River og hafði bann starfa í mörg ár að hirða bæjarskól- ann. Kona Ingólfs er María Frímansdóttir, hét faðir hans Þorvaldur Kristján Agúst sonur séra Jóns er bjó á Hólum í Eyjafirði. var sá Jón sonur Jóns lærða í Möðrufelli, prests til Grundarþinga. Börn þeirra Ingólfs og Maríu eru: I. Jean Ágúst Halldóra, gift