íslandsvinurinn Arthur M. Reeves. Eftir prófessor Richard Beck © © © Willard prófessor Piske, hinn ógleymanlegi vel- gerðamaður íslands og íslenzkra bókmenta, átti þann höfuökost góðra kennara, að geta vakið hjá nemendum sínum lifandi og varanlegan áhuga á námsgreinum þeirra. Auk margs annars megum vér íslendingar minnast þess með þakklæti, að fyrir áhrif frá honum, úr kennarastól, urðu ýmsir nem- endur hans í Cornell-háskóla svo hrifnir af íslandi og svo snortnir af íslenzkum fræðum, að þeir héldu trygð við hvorutveggja æfilangt og syndu þá ást sína í þörfum störfum þeim í hag. Ber sérstaklega að nefna tvo slíkra lærisveina Fiskes, William H. Carpenter, um langt skeið prófessor í þýskum og norrænum fræðum við Columbia-háskólann í New York, og þó einkum Arthu'r M. Reeves; en báðir ferðuðust þeir með Piske á íslandi sumarið og fram á haust 1879, og Carpenter dvaldist þar að auk vetrarlangt. Að frátaldri stuttri en mjög vinsamlegri grein eftir dr. Jón Þorkelsson, í "Sunnanfara" 1892, hefir Reeves ekki verið getið á íslenzku svo teljandi sé. Pyrir ríka íslandsást sína og vakandi áhuga á fræðum vorum er hann þess þó fyllilega maklegur, að vér höldum á lofti nafni hans; það eru allra minstu launin, er vér fáu'm goldið honum og hans líkum, sem af einskærri ósérplægni og fræðaást verja kröftum sínum og fé til aukinnar þekkingar á bókmentum vorum erlendis og afrekum feðra vorra.