56 I. . Arthur Middleton Reeves var fæddur 7. október 1856 í borginni Cincinnati í Bandaríkjunum og ólst þar upp fyrstu' tíu ár æfi sinnar; fluttist hann þá með foreldrum sínum á sveitarbýli í nágrenni við borgina Richmond í Indíana og átti þar jafnan síð- an heimilisfestu, þegár hann var ekki í ferðalögum. Hann var af góðu bergi brotinn; faSir hans,' sem búið hafði við þröngan kost framan af, gerðist, með framsækni, ráðvendni og iðjusemi, áhrifamað- ur og auðugur vel. Naut Arthur því ágætrar upp- fræðslu í æsku og varð snemma víðförull. Á ferm- ingaraldri ferðaðist hann með foreldrum sínum og systrum um Norðurálfu og Miðjarðarhafslöndin; reit hann þá, þó korungur væri, dagbækur yfir það helsta, sem fyrir augun bar, er vitna glögt um skarpa eftirtekt hans og meðfædda frásagnargáfu. Haustið 1872 hvarf hann heim til Richmond og hélt áfram undirbúningsnámi sínu, en jafnframt lærði hann prentiðn og kom upp prentsmiðju, sem færði brátt út kvíarnar undir forsjá hans; ráðdeild hans og athafnasemi komu því snemma á daginn, en aldrei beindust þær hjá honum að auðsöfnun einni saman. í september árið eftir innritaðist Reeves í Cor- nell-háskólann, en sökum A^eikinda lauk hann ekki námi fyr en vorið 1878. í fyrstu bar lítið á honum, því að hann var dulur í skapi og seintekinn, en frábærar gáfur hans og annað atgerfi drógu að sér athygli kennara hans og skólasystkyna er stuhdir liðu og á seinni háskólaárum sínum var hann for- ystumaður í andlegu lífi stúdenta, meðritstjóri viku- ritsins "The Cornell Era" og ritstjóri ársritsins "The Cornelian"; síðasta skólaár sitt gaf hann einnig út vikublað með myndum, sem stóð með miklum blóma meðan hans naut við. Hafði hann því sannarlega æði mörg járn í eldinum. Bn þó hann rækti nám sitt vel og léti mikið til sín taka ýms menningarmál, tók hann einnig drjúgan þátt