72 Stefánsson og Kristín Guðmundsdóttir bjuggu lengi í Húsey. Systkini Kristínar Þorgrímsdóttu'r voru níu, er til fullorðins ára komust: Árni, Benjamín, Guðmundur, Jón, Jónatan, Pétur, Guðrún, Hallfríður, og Sig- þrúður. (Kona Árna hét Þórunn Illugadóttir. Benja- mín átti Gunnhildi Guðmundsdóttur frá Þorvalds- stöðum; seinni kona hans var Sigurbjörg Vilhjálms- dóttir, Jónssonar, frá Ljósalandi í Vopnafirði. Kona Guðmundar hét Sigríður Jónsdóttir; þau bjuggu á eignarjörð sinni í Axarfirði. Jón dó 22 ára, og var ókvæntur. Kona Jónatans hét Guðný Jóhannes- dóttir. Pétur var seinni maður Margrétar Þor- steinsdóttur frá Ljósalandi í Vopnafirði. Guðrún giftist Grími Einarssyni, og bjuggu þau lengi í N. Dakota. Hallfríður giftist Einari Jónssyni. Sig þrúður giftist Kristinsveini Jóhannessyni). Öll þessi systkini ólust upp hjá foreldrum sínum á Há- mundarstöðum og fengu' gott uppeldi. Kristín sagði að foreldrar sínir hefðu' verið í góðum efnum, og að Hámundarstaðir hefði verið talin með betri jörðum í Vopnafirði. En þar var jafnan gestkvæmt mjög, og var þar tekið á móti öllum með opnum örmum gestrisninnar, jafnt fátækum sem ríkum. Á þeim árum, sem Kristín var að alast upp, voru á Hámundarstöðum að jafnaði u'm þrjátíu manns til heimilis; þar á meðal voru tvö eða þrjú fósturbörn, sem þau Þorgrímur og Sigiu'ður höfðu tekið. Kristín mintist jafnan æskustöðva sinna með lofsamlegum orðum. Hún ólst upp á sönnu fyrirmyndar-heimili, þar íem aldrei var um hönd haft annað en það, sem í aha staði var nytsamlegt og heiðarlegt. Og þó hún væri ekki sett til menta, lærði hún í heima- húsum ótal margt, sem kom henni að góðu gagni, þegar hún kom út í lífið. Hún mun snemma hafa kynst mörgu af hinu bezta, sem til er í íslenzkum bókmentum að fornu og nýju, því að foreldrar hennar voru bókhneigð og vel að siér, og höfðu þann sið, að láta lesa upphátt góðar og fræðandi bækur á hinum löngu vetrarkvöldum, þegar fólk