79 um söguna af konunni íslenzku, er lét byggja skála u'm þrjóðbraut þvera, til þess aS ná með greiða sinn til allra, er um veginn fóru. Stundum hefi eg líka hugsað um það, hvernig mundi á því standa, að heimili margra þessara góðu, gestrisnu kvenna skyldu hafa staðið við þjóðvegi, þar sem svo fjöldamargir fengu því að njóta gestrisni þeirra og greiðasemi. En svo hefi eg við frekari íhugun komist að þeirri skoðun, að hvar sem íslenzk gest- risni eitur í hásæti, þar myndist þegar þjóðvegur. "Mikils hefi eg ávalt metið þá vinsemd, sem ýms- ir í hópi hinna eldri íslendinga hafa látið mér í té. Hina einlægu vinsemd þeirra Guðvalds og Kristínar Jackson hefi eg þá og líka metið mikils."