94 Sami reyndist þróttur þinn þar til nýrra dáða. Erfiðleika og andbyrinn aldrei léstu ráða. 'J | Líða fer á langan dag, lífs þíns unnin glíma. Senn er komið sólarlag, 1 J sígur að háttatíma. Eftir ferðafár og vos fram til leiðar móta, sælt er lífs með sigurbros sofna og hvíldar njóta. Verði signuð sálarfrið sólhvörf æfi þinnar, eins og barns, er bíundar við brjóstin móður sinnar. Þorskabítur. l! ><