ALMANAK 1941 23 Með kveðjur til landanna vestur um ver á vorkvöldum björtum hugurinn fer og heilsar í hús og bæi. Með framtíðaróskum um framsókn og dáð við festum vor ættarbönd, treystum vort ráð, og höldumst í hendur um ægi. Vora heill ber að einu lægi. 12840 (Höfundur þessa kvæðis, Árni G. Eylands, ráðunautur í Reykjavík, er islendingum hér vestra að góðu kunnur síðan hann ferðaðist hér um í fyrra sumar; hann hefir einnig sent vestur um hafið hlýjar kveðjur í ljóðum og lausu máli. Hafi hann kaera þökk fyrir þær, ekki síst kvæði það, er hér birtist, og fyrir allan góðhug sinn til okkar Islendinga í landi hér og virkan áhuga á auknum samskiftum við okkur.Richard Beck). QÍJ®