SAFN TIL LANDNÁMSSÖGU ISLENDINGA í VESTURHEIMI r Bellingham og Bellingham Islendingar Eftir Margréti J. Benedictson Bellingham er höfuðborg Whatcom sveitar (county) í ríkinu Washington. Borg sú er hér um bil 96 mílur norður frá Seattle og stendur að austan og sunnan við Bellingham-f jörð. Sá f jörð- ur liggur inn úr Puget-sundinu mikla. Fyr meir voru þar tveir bæir, Fairhaven og Whatcom. Þessir bæir voru sameinaðir í eitt árið 1903 og þá fékk hann nafn það sem nú ber hann, n. 1. Belling- ham, og var kendur við ofannefndan fjörð. En nafn þetta gaf George Vancouver honum árið 1792 til virðingar við lávarð Bellingham, sem fyrstur manna fann þann fjörð. Bellingham var því löglega stofnaður undir því nafni árið 1903. Hvað langt er síðan hinir bæirnir mynduðust eða bygð hvítra manna varð þar fyrst til er ekki vel ljóst. Nú er sagt, að í Bellingham séu 35,000 manns. Þar er höfn ágæt og skipaferð mikil, vegna þess að Bellingham er norðasta sjóborg i þessu ríki, sem teljandi sé. Strandferðaskip milli Alaska og Californía koma þar við og flytja fólk og vörur fram og aftur, norður og suður. Aðal atvinnu veita timbur og þakspóna myllur. Þar eru og múrsteina og sements verksmiðjur, dósa og kassaverksmiðj- ur, niðursuðuhús fyrir lax og ávexti, sykurrófu- verksmiðja, auk margs annars. Fjórar járnbraut-