32 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: ir liggja í gegn um bæinn, þær eru: Northern Pacific, Great Northern, Milwaukee & St. Paul og Canadian Pacific. Þar eru margar veglegar bygg- ingar, svo sem bankar, skolar af öllum tegundum, bókasöfn bókhlöður og milli 30 og 40 kirkjur, og tvö sjúkrahús og m. fl. Bellingham er fallegur bær. Afstaðan sú, að útsýn er fjölbreytt og fagurt. Á firðinum eyjar, háar og lágar, bygðar og óbygðar, og að norðan- verðu við f jörðinn þorpið Marietta. Þar búa enn nokkrir Islendingar meir um það síðar. Austur frá Bellingham gnæfir Mt. Baker, hæsti tindur í Cascade-fjöllunum. Á vetrum faldar hann hvítu. Á sumrum einungis glæsibringu. En tignarlegur er hann hversu sem hann klæðist. Bellingham stendur í hæð þeirri er Seahome heitir klæðir hana, og liggur norður og austur frá henni og nið- ur að sjó. Hæðin sjálf er há og næstum hnatt- mynduð. Vestan við hæðina sjálfa er dalverpi undur fagurt nú albygt, umkringt hæðum, sem liggja til sjávar. Þar búa og nokkrir Islendingar. »wi Islendingar munu hafa komið til Bellingham um líkt leyti og þeir komu til Blaine og Marietta. Því miður eru nú sumir af þeim löngu farnir það- an eða dánir, svo til þeirra verður ekki náð, né neinar verulegar upplýsingar um ætt þeirra og uppruna, né heldur hvaða ár þeir komu þar. Verður þar því meira og minna að fara eftir ágizkunum og er það illa farið. En nú er að tjalda því, sem til er. Félagslíf íslendinga í Bellingham hefir án efa verið likt ag annarstaðar, þar sem eru svo margir af þeim, að um slíkt geti verið að ræða. Smáfélög, sem koma og fara, gera sitt gagn þeim, sem í þeim eru og sennilega fleirum, gleðja og hjálpa, meðan þeirra nýtur við. Veigamest er án efa lestrarfélag þeirra. Viðvíkjandi því, leyfi eg