ALMANAK 1941 33 mér að taka eftirfylgjandi kafla upp úr bréfi frá manni, sem lengi hefir verið og er enn í Belling- ham og því þessu vel kunnur. Hann segir: "Lestr- arfélagið Kári var stofnað 14. mars 1914. Hvatr meður þess var hr. M. Goodman, og var það myndað á hans góða heimili með 40 meðlimum. Nú í dag höfum við 36 meðlimi og er það býsna gott, þar sem aðeins 14 eru eftir af stofnendum þess. Sumir hafa flutt burtu, en flestir dánir og skarð sumra þeirra verður seint fylt. Við eigum fallegt bókasafn. En því miður get eg ekki sagt núna, hvað margar bækur eru í því. Þetta er eina félagið, sem stofnað hefir verið meðal Is- lendinga í Bellingham." Svo hljóðar þessi kafli. Hr. M. Goodman, sem hér er átt við, er Guðmund- ur E. Goodman, góður drengur og merkur maður getið snemma í þessum þætti. "Mundi" var hann alment kallaður. Lestrarfélag þetta starf- aði vel, stóð fyrir flestum eða öllum samkomum í Bellingham, sem nokkurs var um vert. Forseti félagsins hefir lengst og oftast verið hr. Þórður Anderson, einnig getið í þessum þætti. Hefir hann lengi verið í Bellingham var einn af stofn- endum Kðrct og því félagsmálum Islendinga þar vel kunnugur. ISLENDINGAR I BELLINGHAM John W. Johnson er fæddur árið 1867, að Steinstóft í Holtahreppi í Rangárvallasýslu. For- eldrar hans voru hjónin Vigfús Jónsson Þórðar- sonar bónda Oddsonar frá Eyði-Sandvík, og Sess- elja Guðmundsdóttir, sem þá bjuggu á ofannefnd- um bæ. Þriggja ára misti Jón (John) föður sinn, og ólst eftir það upp hjá föðurbróður sínum, Jóni Jónssyni að Ægisíðu í sömu sveit og konu hans, Jórunni Jónsdóttur, þar til hann var 18 ára. Fór hann þá til Eyrarbakka. Þar kvæntist hann