34 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: Kristínu Magnúsdóttur smiðs Þórðarsonar, og Sigríðar ólafsdóttur Stefánssonar, sem þá bjuggu í Garðbæ á Eyrarbakka, ættaðri úr Biskupstung- um í Árnessýslu. Sigríður móðir Kristínar var ná- skyld séra Kjartani Helgasyni í föðurætt hans. Hvað mörg systkini Kristín átti, veit eg ekki, en ein systir hennar er Inga Stefanía, ekkja Guð- mundar Þorkelssonar frá Oddeyrarnesi í Árnes- sýslu, sem nú býr í Reykjavík. Þau hjón John og Kristín kom util Ameríku árið 1900, voru eitthvað lítið í Winnipeg. Fluttu til Bellingham árið 1901 og hafa verið þar síðan. John hefir stundað daglaunavinnu síðan hann kom til þessa lands. Hann er prúðmenni hið mesta, sómi stéttar sinnar, og hefði verið það hverri stétt, sem örlögin hefðu sett hann í. Þau hjón eru valmenni og vel látin af öllum, sem til þeirra þekkja. Þau eru barnlaus. Guðmundur E. (Mundi) Goodman var fæddur 6. apríl 1872 á Ketilstöðum í Mýrdal í V.-Skafta- fellssýslu. Hann ólst upp með foreldrum sínum, Eilífi Guðmundssyni og Arnheiði Þorsteinsdóttur á ofannefndum bæ, og fluttist með þeim og syst- kinum sínum vestur um haf árið 1883. Foreldrar hans settust að í Pembina, N. Dak., og bjuggu þar, þangað til árið 1902, að fjölskyldan flutti til Mari- etta í Whatcom County, í ríkinu Washington. Eftir að vestur kom voru gömlu hjónin á vegum sona sinna Guðmundar og Þorsteins uns þau dóu. Börn þeirra Eilifs og Arnheiðar voru fjögur, Guðbjörg, Þorsteinn, Guðmundur og Ingibjörg, öll nú dáin, nema Þorsteinn. Þegar Guðmundur var 15 ára komst hann í búðarvinnu og vann að þesskonar störfum jafn- framt þvi, sem hann gekk á skóla, til fullorðinsára, já, og til dauðadags. Árið 1898 kvæntist hann Sigríði Jónsdóttur frá Geldingaholti í Skagafirði.