ALMANAK 1941 35 Sigríður kom að heiman með foreldrum sínum og systkinum árið 1883 sama ár og maður hennar. Þau hjón fluttu til Marietta eins og fyr segir. Fékk Guðmundur vinnu í einni stærstu matvöru- búð í Bellingham, gerðist brátt meðeigandi í þeirri verzlun og vann þar meðan hann lifði. Hann lézt þ. 16. febrúar árið 1932. Þau hjónin Guðmundur og Sigríður Goodman fluttu til Bellingham bráðlega eftir að Guðmundur fór að vinna þar, komu sér upp myndarlegu heim- ili og býr ekkjan þar nú með börnum sínum, þeim, sem enn eru heima. Börn þeirra hjóna eru ellefu. Þau eru: Mrs. Lilja, Mrs. Ágústína Árna- son, Kjartan og Haraldur, báðir kvæntir hérlend- um konum, Stefanía, dáin, May Shagren, Florence Ramsey, June Guglams, Jim, Leo, og Walter, heima hjá móður sinni. Auk þessara barna sinna tóku þau sér og ólu upp kjördóttir Ingibjörgu, dóttur Guðmundar og önnu, eitt sinn í Pembina, nú dáin. Ingibjörg er gift hérlendum manni, lög- fræðing. Alt á þetta fólk heima í Bellingham. Öll börnin útskrifuðust úr miðskóla, þau, er þeim aldri hafa náð, sum hafa gengið á Washington University, og þar er Leo nú, en Walter á mið- skóla í Bellingham. Öll eru börnin mannvænleg í raun og sjón, enda eiga þau hvorugt langt að sækja, því fallegri hjón er óvíða að finna en foreldrar þeirra voru. Sigríður með fegurstu konum og að sama skapi höfðingleg. Guðmundur prúðmenni, fríður sýnum og vel vaxinn, þar til og með lipurmenni hið mesta. Á öllum íslenzkum mannamótum, þar sem íþróttir af einhverji tagi fóru fram, stjórnaði "Mundi" þeim að sjálfsögðu. "Mundi" var hann kallaður af flestum, sem til hans þektu, siálf- sagt af því, að öllum var vel til hans, enda báru menn alment traust til hans. Hann var greið-