36 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: vikinn, hjálpsamur og ráðhollur þeim, sem hans leituðu. Fjársýslumaður hefir hann og verið, ella hefði hann ekki verið gerður félagi í verzlun þeirri, sem hann vann við, þá að öllum líkindum félítill. Uppeldi barnanna ber og vott um það, að vel var heimilið haldið. Bæði voru þau hjón fé- lagslynd og hjálpsöm íslenzkum félagsskap heima fyrir og annarstaðar. Sigríður var drotningin á heimili sínu, engu síður en móðir og eiginkona, sem hvorttveggja fór henni vel. Heimili þeirra hjóna var gott heimili í öllum skilningi, og land- nám barna þeirra í menningar-skilyrðum þessa lands er á traustum grundvelli bygt. Jón Gíslason Lyng er fæddur 1. júlí 1876 á Hnappadalsvöllum í Öræfum, í Austur-Skafta- fellssýslu. Faðir hans var Jón Gísli Jónsson á framannefndum bæ. Faðir hans, Jón Arason á Eystrahrauni, Jónssonar prests Einarssonar á Skinnastað í Þingeyjarsýslu, Einarssonar prests Nikulássonar á sama stað, Nikulássonar bónda á Héðinshöfða. Móðir Jóns Gíslasonar Lyng var Guðný Eiríksdóttir, ættuð úr Skaftafellssýslu. Guðný var systir Ingimundar Eiríkssonar á Sörla- stöðum í Seyðisfirði getið í Óðni jan.ág. 1929. Jón misti móður sína þegar hann var 8 ára að aldri. Fór þá til Ingimundar móðurbróðir síns og var hjá honum næstu átta ár. Eftir það vann hann á Seyðisfirði oftast á sjó. Árið 1904 fór hann vestur um haf og var eitt ár í Winnipeg. Þaðan fór hann til N. Dak. en var þar skamma hríð. Vestur að hafi fluttist hann árið 1905, settist að í Bellingham og hefir verið þar síðan. Kona Jóns G. Lyng er Björg Kristín Jóns- dóttir Jónssonar ríka i Lönguhlíð og Jóhönnu Jónsdóttir, komin af hinum nafnkunnu Hjálm- staðasystrum í Eyjafirði. Björg er systir Sigtýrs Johnson (sjá Almanak 1929, bls. 39). Björg er