ALMANAK 1941 37 fædd 6. nóv. 1862, að Brautarhóli í Svarfaðardal í Eyjafjarðarsýslu. Hún var hjá foreldrum sínum í 22 ár. Fór þá til Akureyrar og vann hjá Einari Pálssyni í 8 ár. Þá fór hún á Vopnafjörð og þar var hún önnur 8 ár. Þar hittust og kyntustu þau Jdn og hún. Með Jóni fluttist hún vestur um haf árið 1904. Þau eiga engin börn, en hafa alið upp pilt og stúlku. Pilturinn er Frans Sóphusson (Trampa), systursonur Kristínar Lyng. Þenna pilt tók hún að sér fimm vetra gamlan, þá er systir hennar, Guðrún, misti mann sinn Trampa frá fjórum börnum. Var Kristín þá vinnukona á Akureyri, ung og dugleg og einhleyp. Stúlkuna, sem heitir Guðrún Ingibjörg, tóku þau að sér eftir að þau komu til Ameriku. Bæði þessi börn eru nú gift og eiga heimili í Bellingham. Sóphusar er getið hér á eftir. Guðrún Ingibjörg er gift sænskum manni og á tvö efnileg börn og gott heimili. Bæði eru þau Jón og Kristín stór og myndar- leg, eiga þau og til stórra að telja. Þau eru fá- skiftin um það, er ekki tekur til þeirra, komast vel af og eru alment vel látin, eins og slíkt fólk vanalega er. Glaðlynd og gestrisin. Franz Sophusson (Trampa) er fæddur á Oddeyri í Eyjafjarðarsýslu 2. febr. 1887. (Sjá ætt hans í þætti Jóns og Kristínar Lyng). Hjá þeim eða henni er hann uppalinn og með þeim kom hann vestur um haf. Kona hans er Jennie, fædd 3. okt. 1892 á Sauðárkróki í Skagafjarðar- sýslu. Foreldrar hennar, Guðm. Jónsson og Rósa Jóhannesdóttir, nú til heimilis á Mountain, N. Dak. Jennie var ekkja Halldórs Eiríkssonar Hall- dórssonar að Hensel, N. Dak., þegar hún giftist Sophusi. Með fyrra manni sínum átti hún þrjá sonu: Eirík, Pál Friðrik og Halldór. Eftir lát