38 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: fyrra manns hennar fór elsti sonurinn í fóstur til Önnu föðursystur sinnar og manns hennar, Fred Johnson. Yngri drengirnir eru hjá móður sinni og stjúpa. Þau Sophus og Jennie eiga tvo sonu, Franz Sóphus og Rosman Robert; nú þriggja og fjögurra ára gamla. Þessum hjónum hefir farnast vel, þau eigr laglegt heimili í Bellingham. Sophus er einn af þeim fáu, sem haft hefir stöðuga vinnu gegnum alt vinnuleysið þessi síðustu ár. Þau eru glaðleg heim að sækja, en gefa sig lítið að íslenzkum félagsskap. Magnús og Hildur Thorlðksson. Magnús er fæddur í Hrísey í Eyjafirði þ. 15. júní 1871. For- eldrar hans voru hjónin Þorlákur Ásgrímsson og Snjólaug Jóhannesdóttir. Þorlákur druknaði af hvalveiðaskipi rúmu ári eftir að sonur hans fædd- ist. Magnús ólst upp hjá móður sinni og kom með henni vestur um haf árið 1876. Snjólaug fór til Nýja-lslands. Þar giftist hún Sigurði Sigur- björnssyni. Þau bjuggu lengi í Árnesbygðinni þar sem hann hafði áður numið land. Árið 1893 kvæntist Magnús Hildigerði vanalegast kölluð Hildur dóttur Benedikts Jónssonar Austmanns og konu hans Rannveigar Þorleifsdóttur. Hildur er fædd á Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá í Norður-Múlasýslu, þ. 23. júlí 1875. Benedikt faðir hennar var ættaður úr Eyjafirði, en Rannveig móðir hennar var frá Kórustaðagerði í Norður-Múlasýslu og þaðan ættuð. Þær Rannveig þessi og Guðný Lee voru tvíburar (sjá Almanak, Blaine þætti 1926). Þau hjón Benedikt og Rannveig komu vestur um haf, settust að í Selkirk, Man., og þar mun Rannveig hafa dáið. Benedikt er og dáinn fyrir mörgum árum.