ALMANAK 1941 39 Magnús og Hildur voru fyrstu búskaparár sín í Selkirk. Þar vann Magnús á sögunarmyllu Robinsons og varð þar formaður. Árið 1906 fluttu þau hjón til Bellingham og hafa verið þar mest af tímanum síðan. Þar hefir Magnús starfað á sögunarmyllu í 20 ár og verið vélastjóri. Börn hafa þau hjón átt íjögur. Þau eru: Benedikts Tryggvi, kvæntur hérlendri konu. Hann á heima í Fillipisku eyjunum. Þar rekur hann þá vinnu, að annast all-ar sagir (head filer) á sögunarverkstæði. Ethel May er gift hérlendum manni og búsett í Seattle. Daniel Gordon Ross, kvæntur konu af þýzkum ættum einnig "head filer" á sögunarmyllu búsettur í Bellingham, og Richard Grunvall kvæntur norskri konu, skóla- kennari á Puget Island, Washington. Auk eigin barna sinna hafa þau hjón Magnús og Hildur alið upp stúlku þá, er Florence heitir, nú gifta hér- lendum manni og til heimilis í Everett, Washing- ton. Um ætt hennar vitum vér ekki. Tveir synir þeirra hjóna, Benedikt og Ross voru í stríðinu mikla, báðir í Flughernum (The Royal Flying Corps); einnig tveir bræður Hildar. þeir Halldór Thorleifur og Jón ólafur, voru í því stríði. Jón var tvö ár og kom ómeiddur, hinn "shell shocked" og hefir enn ekki náð sér. Þeir eiga heima í Prince Rupert, B. C. Auk þeirra bræðra átti Hildur systur, sem Sigríður heitir. Hún er i Minneapolis, Minn. Þetta sýnir skaplyndi þeirra frænda sker- ast hvergi úr leik, þó um hættur og örðugleika sé að ræða. Enda er þetta fólk alt dugandi fram- sóknarfólk, og bjargráðmenn með afbrigðum. íslendingum til sóma hvar sem er. Þórður Anderson (Einarsson Þórðarsonar frá Húsatóftum, af Bólholts-ætt svonefndri, sem er