40 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: mikill ættbálkur á báðar hliðar) er fæddur 7. sept. 1875 í Úthlíð í Biskupstungum í Árnessýslu. Móðir Þórðar Anderson var Guðrún Guðmunds- dóttir frá Efstadal í Laugardal s. s. Guðmundur sá var kallaður Hansson fyrir þá sök, að faðerni hans þótti óvíst. Sumir sögðu hann son séra Guðmundar prestlausa. Einu sinni þá er séra Guðmundur vann í smiðju sinni í Reykjadal Hrepp, þar sem hann þá bjó, er sagt, að Bjarni Halldórsson frá Reynistað kæmi þar, sæi prest að verki og mælti fram þenna alkunna vísuhelming: Tvílaust þetta tel eg stál, tólin prestsins fara á ról. prestur botnaði: Ili þín af sulti sál sólarlaus fyrir næstu jól. Bjarni varð úti eins og kunnugt er, og sögðu menn ákvæði séra Guðmundar hafa orðið að áhríns- orðum. Þórður var með foreldrum sínum fyrstu 12 ár æfi sinnar, síðan hefir hann spilað upp á eigin spýtur. Fyrst var hann smali og vikadrengur, síðan vinnumaður og sjósóknari á Suðurnesjum. Vestur um haf fór hann árið 1900. Var eitthvað iítið í Winnipeg, fór þaðan til Duluth, og árið 1902 vestur að Kyrrahafi, var 5 ár í Blaine. En árið 1907 flutti hann tli Bellingham og hefir verið þar siðan. Kona Þórðar er Jóhanna Guðmundsdóttir frá Hlíð í Hörðudal í Dalasýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Hannesson og Málfríður Sigurðardóttir, bæði ættuð úr Eyrarsveit í Snæ- fellsnessýslu. Jóhanna er f. 27. júní 1879. Hún