ALMANAK 1941 41 var ein af þrettán systkinum, sem nú munu flest látin. Einn af bræðrum hennar var Sigurður látinn í Blaine 18. júlí 1931, og þá getið að nokkru, sem og ættmenna hans í Heimskringlu litlu síðar. Jóhanna var með foreldrum sínum til fullorð- insára. Kom vestur um haf, til Pembina N. Dak., árið 1900, og þaðan til Bellingham 1905. Giftist Þórði Andersyni árið 1910, og hafa verið í Belling- ham síðan. Þau hjón hafa tekið mikinn þátt í félagslífi Islendinga í Bellingham. Einkum er það satt um Þórð. í mörg ár hefir hann verið forseti lestrarfélags þeirra, sem "Kári" heitir, og staðið framarlega í öllum þjóðlegum og gleðskapar hreyf- ingum þeirra og oftast, ef ekki æfinlega, verið forseti á öllum almennum samkomum þeirra. Hann er þar skörulegur og vel mál farinn. Hann er "shingle weaver" (býr til þakspæni), og hefir lengst af stundað þá atvinnu. Þau hjón eiga lag- legt heimili og bú nokkuð. Til þeirra er gott að koma, ekki síður en annara landa. Frímann K. Sigfússon er fæddur 4. nóv. 1875 að Bakka á Langanesi í Norður-Þingeyjarsýslu. Faðir hans var Sveinn Sigfússon, en móðir Kristín Jónsdóttir, ættuð af Langanesi. Frímann ólst upp með föður sínum og ömmu móður Sveins Kristínu Jónsdóttur, ættaðri af Langanesi. Þegar hún lézt árið 1882, flutti Sveinn til Seyðisfjarðar og Frímann með honum. Þaðan fluttu þeir feðgar vestur um haf árið 1889, og settust að í N. Dakota; þar voru þeir næstu tíu árin. Þá fór Frímann til Pine Valley í Manitoba, setta þar á fót verzlun og stjórnaði henni hálft annað ár. Á því tímabili kvæntist hann Kristínu dóttur Kristjáns Rósmann Casper, sem þá var enn í föðurgarði í Roseau, Minn. Eftir að Frímann kvæntist, tók hann föður sinn til sín og voru þeir feðgar saman, þar til