42 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: Sveinn lézt í Blaine árið 1910. Til Blaine flutti Frímann árið 1902, stofnaði þar verzlun í félagi með tengdaföður sínum, sem þeir ráku þar til 1907. Seldu þeir þá verzlun þessa. Sama ár byrj- aði Frímann verzlun á ný upp á eigin spýtur og rak hana í þrjú ár, þá keypti bændaverzlunar- félag, sem kallaðist Roachdale Inc, verzlunina. Hjá þvi félagi vann svo Frímann næsta ár. En þá stofnaði hann verzlun upp á eigin spýtur, og rak hana enn um skeið. Konu sína Kristínu misti Frímann árið 1910 frá fimm börnum, öllum ungum. Þau eru: Rós- björg Sigríður, nú gift til heimilis í Seattle; Helga, Mrs. Brown, til heimilis í Bellingham; Sveinn Kristinn, dáinn; Sigfús, heima hjá föður sínum, og Kristín Anna, Mrs. Buxton, í Seattle. Árið 1911 kvæntist Frímann seinni konu sinni, Jósefínu Höllu Jósepsson í Blaine. Foreldr- ar hennar eru hjónin Steinunn ólafsdóttir og Magnús Jósefsson (sjá Almanak 1929, bls. 63). Seinni kona Frímanns er systir Rósu Casper í Blaine, ekkja Kr. Caspers, sem nefndur var K. N. Strandabúa. Börn þeirra Frímanns og Jósefínu Sigfússon eru þessi: Steinunn Margrét, Ólína Aðal- heiður, Lára Jósefína, Elinora, Lucinda, Magnús Theodór, William Jennings Vilbur, Frímann, Sveinn og Kristinn, öll í foreldrahúsum. Jósefína er ágætiskona eins og hún á kyn til. Hún reyndist sjúpbörnum sínum, sem sínum eigin, sem bezta móðir. Má af því marka ágæti hennar, sem og dagsverkið, sem hún leysir af hendi að ala upp og annast þenna stóra barna- hóp. Betri konu og móðir getur ekki. Kristín, fyrri kona Sigfússons, er mér og sagt, að hafi verið ágætis kona, gáfuð í bezta lagi og framúrskarandi starfskona í félögum þeim er hún heyrði til. Vel gefin um flesta hluti, svo ef