ALMANAK 1941 43 Sigfússon þyrfti nokkurra meðmæla, ætti konu- valið að vera honum ærin meðmæli. En Frímann K. Sigfússon þarf engra með- mæla. Hann er maður vel gefinn um marga hluti. Hann átti mikinn og góðan þátt í félagsmálum Blaine Islendinga meðan hann var þar og lét þá allmikið til sín taka. Hann er maður mikill vexti og karlmannlegur. Hann er og vel skynsamur mun hafa gengið á verzlunarskóla eitthvað austur i Dakota, er þess utan sjálfmentaður maður. Sann- ur íslendingur er hann, án þess þó að láta það hindra samkomulag sitt við umhverfi það, er hann hefir lifað í. Eins og gefur að skilja, hafa erfiðis kringumstæður markað honum bás á síð- ari árum: ómegð, heilsuleysi og svo það, sem allir hafa átt í höggi við síðan 1930 vinnuleysi. Samt lætur hann, og þau hjón bæði eftir sig mikið og gott dagsverk. Börnin öll sérlega vel gefin. Þrjár elstu dæturnar frá síðara hjónabandi útskrifuðust af miðskóla með hæstu einkunn hver á eftir ann- ari í þrjú ár, og útlit fyrir, að yngri börnin haldi áfram þeirri reglu. Frímann K. Sigfússon er hugsandi maður í beztu merkingu þess orðs. Hann er einn af þeim, sem tilveran virðist hafa ætlað annað, en að njóta gefinna gáfna til eigin hagsmuna. Guðbjörg og Vigfús Vopni. Guðbjörg Vopni er fædd þann 23. maí 1864 að Hólmlátri á Skógarströnd í Snæfellsnessýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Guðbrandur Guðbrandsson Magnússonar, sem allan sinn búskap bjó á ofan- nefndum bæ, og Lilja ólafsdóttir Símonarsonar. Ólafur faðir Lilju og Valdís móðir Dr. Valtýs Guð- mundssonar voru náskyld. Guðbrandur Magnús- son á Hólmlátri var á sinni tíð talinn einn af rík- ustu bændum á íslandi og kallaður Guðbrandur ríki. Kristiana kona Daníels Sigurðssonar í Shoal