ALMANAK 1941 45 hann sitja þar og klappaði honum í sífellu, meðan á bænagerðinni stóð, og sem fór fram í hljóði. Næsta dag fórum við tímanlega af stað, og náðum þann dag til Brandon, en sú vegalengd mun nær því að vera 50 mílur. Þar gistum við á hóteli. Þriðja daginn héldum við enn áfram og kom- um að kveldi dags þess að bóndabýli einu, og báð- um um gistingu. Var okkur húsaskjól velkomið, en rúm ekki, því þar var ekki nema eitt rúm til. í því svaf bóndi og þrjú börn konan var ekki heima. Annaðist bóndi börnin í fjarveru hennar. Við hjónin gerðum okkur flatsæng á gólfinu, úr okkar eigin rúmfötum, sváfum svo þar og fæddum okkur sjálf, og mátti vel við það bjargast. Við höfðum sem sé búist við þessu og höfðum því nesti. Fjórða daginn komum við seint að stóru húsi. Á því sáum við enga glugga. Fanst mér ekki árennilegt, að beiðast þar gistingar, en nú var ekki um annað að gera. Þegar inn í húsið kom. sáum við, að því var skift í tvo jafna hluti, með langborði einu. ar okkur leyft, að hreiðra um okkur fyrir framan þetta borð, sváfum við enn á gólfi við okkar eigin föt, og fæddum okkur sjálf. Ekki man eg til, að þar sæum við nema einn mann, þann er húsum réði. Síðan hefir mér dottið í hug, að þarna hafi verið smáverzlun, eins og stundum var í þá daga út um land, þar sem langt var á milli kauptúna. Vera má og, að fólk hafi þar verið og hafst við uppi á lofti, þó eg ekki yrði þess vör. Fimta daginn lögðum við af stað, án þess að sjá eða hafa tal af nokkrum manni, og lentum að kvöldi á gestgjafahúsi í smábæ einum, og áttum þar góða nótt. Ekki man eg hvað sá bær hét. Næsta morgun, sem var sjötti dagur ferða-