ALMANAK 1941 49 svo minnir mig að bærinn héti. Var okkur full þörf á aðhlynning fyrir menn og skepnur. Næsta dag komum við til Helga bónda, tengdaföður Jóns Einarssonar í Foam Lake, og fengum þar ágætar viðtökur. Þaðan héldum við til Guðbrandar Guðbrandssonar bróður míns og vorum þar í tvö ár, og töpuðum þar öllu, sem við áttum. Þaðan fluttum við til Winnipeg, og höfð- um með okkur Sigþrúði Kristínu Gísladóttur, sem við tókum til fósturs, þá 18 mánaða gamla. I Winnipeg komum við okkur upp laglegu heimili og þar leið okkur vel. Þannig er sagan. Jón maður Guðbjargar féll af byggingu, sem hann vann við, 30. apríl 1904 og dó samstundis. Að honum var mannskaði, því hann var merkur og vandaður maður. Örlögin létu skamt á milli stórra höggva að því, er Guðbjörgu snerti, því fósturdóttur sína misti hún 18. ágúst 1906. Hún druknaði að Win- nipeg Beach. Festi Guðbjörg ekki yndi í Winni- peg eftir það. Seldi eignir sínar þar og flutti til Blaine, Washington, og var um tíma hjá frænd- fólki sínu, sem þar átti heimili á þeim árum, Guð- brandi Sveinbjarnarson og konu hans Maríu Isaksdóttur. Þaðan fór hún til Vancouver, B. C. Kyntist þar Vigfúsi Vopna og giftist honum 22. des. sama ár. Áttu þau heim í Vancouver, B. C., þar til 15. febr. 1908, að þau fluttu til Bellingham og eru þar nú. Með fyrra manni sínum átti Guðbjörg eina dóttur, sem Katrín hét. Hana mistu þau 16 vikna gamla. Auk fósturdótturinnar, sem þegar er getið, ólst bróðursonur hennar, Karl Júlíus, u.pp hjá henni frá því hann var átta ára gamall, kom með henni vestur að hafi og átti heimili hjá henni til 18 ára aldurs.