50 ÖLAFUR S. THORGEIRSSON: Guðbjörg var með fyrra manni sínum land- nemi í tveim íslenzkum nýlendum, Árgyle og Þingvalla. Þó Jón fyrri maður hennar væri lærð- ur söðlasmiður heima, mun hann ekki hafa stund- að þesskonar iðn í þessu landi. í Winnipeg vann hann víst mest við byggingar. Guðbjörg er vönduð og góð kona og vel látin. Vigfús Vopni er húsasmiður og hefir rekið þá iðn meira og minna alla æfi, fyrst hjá öðrum en síðan hann kom vestur hér, upp á eigin spýtur. Hann er verkmaður mikill og hagsýnn um alt sem hann gerir. í Bellingham leið þeim hjónum lengi vel, áttu gott heimili, sem æfinlega stóð opið vinum þeirra. Gestrisin eru þau og vel liðin. Viðvíkjandi ætt Vigfús Vopna, er nóg að segja, að hann sé bróðir Jóns Vopna í Winnipeg. Við hann kannast allir. Stefán Jónsson er fæddur 4. júlí 1874 í Sveins- koti á Reykjáströnd í Skagafjarðarsýslu. Faðir hans var Jón sonur Bjarna bónda á Sjávarborg, Jónssonar bónda í Vallholti í sömu sveit, og sýslu. Móðir Stefáns var Helga Sölvadóttir frá Steini á Reykjaströnd ölafssonar á sama bæ. Foreldrar Stefáns bjuggu eitt sinn á Hafsteinsstöðum í sam- býli við séra Magnús Torlacíus. Föðurbræður Stefáns voru þeir Sigurður bóndi á Stóra-Vatns- skarði, Þorsteinn í Litlu Gröf og Jónas á Efra- vatni, seinna á Kimbastöðum. Jón faðir Stefáns drukknaði frá Sauðárkrók, þar átti hann heima síðustu æfiár sín. Hann drukknaði árið 1882. Bjó Helga eftir það með syni sínum Bjarna, er þá tók við búsforráðum, þá 19 ára gamall. Hann er nú elstur Drangeyjarformaður í Skagafirði. Stefán ólst upp hjá móður sinn, en fór ungur að vinna fyrir sér, við smalamensku á sumrum og