Í2 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: þar eru þau nú. Stefán er lipurmenni og söng- maður góður. Þau hjón bæði vel látin. Stefán og Guðrún hafa eignast 12 börn. Fjög- ur af þeim dóu ung. Þessi lifa: Óskar, alinn upp af föðurbróður sínum Bjarna, formanni á Sauð- árkrók; Helga, kona Gilberts bónda Sveinbjörns- sonar, nálægt Wynyard, Sask.; Guðmundur, heima; Jóhannes, vinnur á Strandferðaskipum, annars heima; Jón og Sigurrós, tvíburar, heima; Ralph, alinn upp hjá Guðrúnu föðursystur sinni Thorleifsson í Winnipeg. Einar M. Einarsson er fæddur 7. febrúar 1869, að Steinsholti í Reykjavík. Faðir Einars var Magnús Einarsson járnsmiður, Einarssonar bónda í Sauðargerði, við Reykjavík. Voru þeir feðgar í ætt við Dr. Finsen og frændur hans hvar ættir koma saman eða hvernig er ekki nógu ljóst til að setja hér. Móðir Einars en kona Magnúsar hét Sigríður. Hún var Guðmundsdóttir (alin upp hjá Ámunda bónda á Miðengi). Þegar Einar var fimm ára, lézt móðir hans. Fór hann þá í fóstur föður- systur sinnar, Jóhönnu Einarsdóttur, þá ekkju Péturs Jónssonar, sem lengi var ritari hjá Árna landfógeta Thorsteinsson. Hjá Jóhönnu var Einar fram yfir fermingu, fór þá til föður síns og var með honum þangað til hann, þ. e. Magnús, flutti til Ameríku 1886. Magnús flutti til Utah. Einar stundaði sjó þegar á unga aldri hjá ýmsum. Útskrifaðist af Sjómannaskólanum í Reykjavík 1896. Var skipstjóri fyrir aðra næstu þrjú ár. Flutti til Ameríku 1899, til Spanish Fork, Utah, þar kvæntist hann 10. sept. 1900. Kona Einars er Margrét Sigurðardóttir, fædd 6. sept. 1875 í Gröf í Skaftártungu, V.-Skaftafells- sýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður Ásmundsson Finnbogasonar í Kotey á Meðallandi