ALMANAK 1941 53 og Þóra Guðmundsdóttir Guðmundssonar bónda Eyjólfssonar á Síðu í sömu sveit, og bæði þaðan ættuð. Margré.t ólst upp hjá foreídrum sínum þar til hún var 14 ára, fór þá að vinna fyrir sér sjálf. Til Ameríku kom hún árið 1900 til Spanish Fork, og giftist Einari. Árið 1902 fluttu þau til Blaine og voru ar 13 ár þaðan til Bellingham og eru þar nú. Síðan Einar kom frá Islandi hefir hann stund- að almenna erfiðisvinnu á sögunarmyllum og nið- ursuðuhúsum. Hann er maður vel skýr, einn af þessum leitandi mönnum, víðlesinn og vel lesinn, og fyrirtaks söngmaður. Bæði eru þau hjón vel látin af samborgurum sínum. Börn þeirra hjóna eru: Guðmunda Jóna, gift hérlendum manni, til heimilis í Bellingham; Kristinn, Sigríður Jóhanna, bæði heima; Einar í Pasadena, Cal., hann stundar blómarækt; Þóra. Ásborg, Margrét, Sóley og Laufey, öll heima, myndarleg fjölskylda. Framh. Athugasemd: Landnámsþættir þessir eru samdir fyrir nokkrum árum, en hafa orðið að bíða rúms hér í ritinu; hafa því vafalaust orðið ýmsar breytingar meðal íslend- inga í Bellingham síðan þættirnir voru ritaðir, og eru lesendur beðnir að taka það með í reikninginn.R. Beck.