54 óLAPXm S. THORGEERSSON: Sumarkvöld í Bellingham Eftir Richard Beck Himinsins rauðagull í vestri glitrar, geislar um turna skýjaborga leika; ljósstraumum hyljast höfuð grænna eika; húmdökkur sær í logni kvöldsins titrar. Borgin, sem stjörnuhaf við hæðafætur, heillandi skín, í dalsins mjúkum örmum; deplar mót heiðu lofti ljósahvörmum; lágt berst að eyrum skóhljóð kyrrar nætur. Söngþrestir hvílast, sefur rós í skóg; svefnhöfgar bárur vaggast hægt að ströndum. Draumblíð í fjarlægð rísa risafjöll. Vegmóðum huga vekur týnda ró, vondjarfa sýn að nýjum draumalöndum, svipmikil tign í sumarkvöldsins höll.