in-ivv.írt/'T Jón Goodman Eftir G. J. Oleson Það er skylda hverrar kynslóðar að sýna hin- um eldri þakklæti og ræktarsemi. Það er gæfu- spor hverjum einstakling, hverri kynslóð og hverri þjóð sem það gerir; þegar maðurinn hefir starfað langa æfi, unnið sitt verk trúlega og drengilega fyrir sitt heimili og mannfélag, þá á hann það skilið að honum sá ekki kastað fyrir borð í djúp gleymskunnar, heldur sýnd sú viðurkenning, hlut- tekning og nærgætni sem hann á skilið fyrir vel unnið lífsstarf. Rétthugsandi mað- ur krefst ekki launa fyrir skyldustörf lífsins, en útrétt hönd meðbræðra eða systra gleður gamalt fólk. Það eru í hópi Islend- inga hér í landi allmargir enn, sem komu hér með fyrstu innflytjendum, og hafa því átt samleið með þeim 65 ár og jafnvel lengur. Einn af þeim mönnum er maðurinn sem eg vil hér minnast, hinn valinkunni öldungur og merkisbóndi í Argyle-bygð um 55 ára skeið, Jón Goodman, sem nú er kominn á tíræðis aldur, en er samt ennþá ern og fær á flestan sjó, á hann langa og merkilega sögu að baki og kann hann frá Jón Goodman