56 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: mörgu að segja úr fortíðarsögu Islendinga hér í álfu. Jón er fæddur að Nesi í Aðaldal í Þingeyjar- sýslu 24. marz 1848.D Bjuggu foreldrar hans, Guðmundur Gíslason og Sigríður Jónsdóttir lengi á Hjalthúsum í Aðaldal, og ólst Jón upp á þeim slóðum til fullorðins ára og reyndi súrt og sætt í uppvextinum, á hans uppvaxtarárum voru lífs- kjör manna hörð á þeim slóðum, almenn fátækt, ilt stjórnarfar og náttúran óvægin þarna á norður- hjara heims, við hið yzta haf. Útþráin var sterk í hugum manna sem frelsi og framsókn unnu fyrir og eftir 1870 og sú þrá greip Jón heljartökum og hann flutti vestur um haf 1874, árið sama er þúsund ára sólin rann upp yfir ættjörðina. Hann var fyrsta árið í Kin- mount, Ontario, eða þar í grendinni, vann hann fyrsta veturinn við járnbrautarvinnu fyrir 90c á dag, um vorið, varð hann vinnulaus og félagar hans fleiri. Fékk hann þá bændavinnu mánaðar- tíma og var kaupið $1.00 um mánuðinn, en að loknu verki gaf bóndi honum $2.00 umfram kaup og nýjar buxur og treyju. Hafði bóndi þessi vef- stól og vann fatnað sjálfur, var nafn hans Good- man og mun það hafa meðfram verið ástæðan fyrir því, að hann tók Goodmans nafnið en nokkru hefir ráðið að hann var Guðmundsson. öðlaðist Jón þarna nokkra reynslu við búnaðarstörf, fékk margfalt betri laun en hann samdi um, og bóndi vildi ekki með nokkru móti missa hann. Félagar hans vildu ekki sinni svona illa launuðu starfi og lágu því uppi og eyddu því sem þeir voru búnir að vinna fyrir. 1) 1 manntalsbók séra Friðriks Hallgrímssonar er Jón talinn fæddur 24. marz 1849, en Jón telur áreiðanlegt að hann sé faeddur eins og hér er skýrt frá.