58 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: hann síðan yfir öll tjöldin og var hann við það allan veturinn, mátti hann fá mann sér til hjálpar á laugardögum svo ekki þyrfti hann að vinna á sunnudögum. Þriðja veturinn sendi John Taylor hann norð- ur á Hverfisteinsnes með Stefáni Magnússyni og Jósep Schram til hvítfisksveiða, lentu þeir í ýms- um svaðilförum, en nokkuð fengu þeir af fiski. Fór Jón með sinn hlut til Winnipeg Taylor lán- aði honum hest og seldi hann fiskinn þar fyrir 25c hvern fisk, var það stór og fallegur fiskur. Jón var nokkur ár í Winnipeg áður hann fultti til Argyle-bygðar, sem var 1885. Keypti hann land á hæðinni fögru og alkunnu suðaustur frá Glenboro um 5 mílur og bygði á hæðinni sunnanverðri og var þar hið fegursta útsýni suður yfir vatnið í dalverpinu sunnan við hæðina. Var það framan af árum mikið og fagurt vatn, en á undanförnum þurkaárum hefir komið fyrir að það hefir þornað. Stundum á undanförnum árum, hafa hundruð og þúsundir af hvítum svönum frá fjarlægum stöðum sótt að vatninu, eins og af guði sendir gamla manninum til gleði og hress- ingar. Jón giftist 1881 Guðrúnu Sigríði Eiríksdóttir Pálssonar og konu hans Helgu Arngrímsdóttir, og var hún fædd í Hróarstungu í N. Múlasýslu 17. ágúst 1855. Var hún vænsta kona og búhyggind- um gædd. Var þeim hjónum haldið veglegt gull- brúðkaup að forgöngu Frelsissafnaðar í Argyle Hall 3. nóv. 1931, (er skrifað um það í Lögberg 7. jan. 1932). Var það að verðleikum eitt ánægju- legasta fagnaðarmót er hér í bygð hefir verið haldið, tók öll bygðin þátt í því með þeim inni- legheitum sem eru fátíð. Jón hefir verið gildur bóndi síðan eg fyrst