60 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: verið honum tryggur ferðafélagi langa æfi. Var hjónaband þeirra með afbrigðum gott. Á lífi eru tvö börn: 1. Thori, býr í föðurgarði, giftur Vilborgu Hannesardóttir Sigurðssonar og 2. Kristbjörg, gift Kjartani Isfeld, búa þau hjá gamla manninum í húsi sem hann bygði fyrir sig er sonur hans tók við búinu. Stjúpdóttir á hann á lífi, Þóru Guðnýju Wagstaff, sem búið hefir að Shand Creek, Sask. Tvær dætur misti hann, aðra í æsku er Helga Sigríður hét og Guðbjörgu.D fædd 4. okt. 1883 dáin 12 okt. 1935, ógift, mesta myndar stúlka og alkunn í Argyle-bygðinni og víðar, sem leiðtogi í kristi- legu starfi og öllum góðum félagsmálum. Við frá- fall hennar var kveðinn þyngstur harmur að föð- urnum, því hún var skörungur í öllu sínu starfi og bestu mannkostum búin, og hann unni henni mjög, en höfundur lífs og ljóss hefir gefið honum styrk og þrek til að afbera eldraun tímans og öll sár sem honum hafa verið slegin. Hann kvartar aldrei, hann ber sinn harm í hljóði. Slæ eg svo botninn í með hinni gullfögru vísu Stephans G.: "Þann ferðamann lúðann eg lofa og virði er lífsreynslu skaflana brýtur á hlið og réttir svo mannlífsins mannrauna byrði á margþreyttar axlir og kiknar ei við." 1) Um Guðbjörgu hefi eg ritað nokkur mirmingarorð í "Árdísi" 1937, bls. 1720.