Guðmundur Guðmundsson Norðmann 1847 1935 Eftir G. J. Oleson Óbættir liggja margir hjá garði íslenzkir frumherjar hér í landi og merkismenn, og einn af þeim er Guðmundur G. Norðmann sem lengi var merkisbóndi í Argyle-bygð í Manitoba og landnámsmaður þar.D Hann var í blóma lífsins þegar hann kom vestur um haf, einn með fyrstu Islendingum sem flutti til Canada. Fædd- ur var hann á Sigurðarstöð- um á Melrakkasléttu 1. okt. 1847. Faðir hans, Guðmund- ur Gottskálksson, var bróðir hins nafnkunna gáfumanns Erlendar Gottskálkssonar í Garði í Kelduhverfi og þeirra systkina. Móðir Guðmundar sem hér um ræður, var seinni k o n a Guðmundar Gottskálkssonar, hét hún Guðrún Skúladóttir, hún var þrígift. Var hún áður gift Árna Halldórssyni og voru synir þeirra þeir Halldór og Skúli er hér fluttu vestur á fyrstu tíð og voru nafnkunnir merkisbændur í Argyle- bygð í langa tíð. Guðmundur misti föður sinn 1) Guðmundar er að visu getið í "Brot af Landnáms- sögu Nýja-lslands" eftir Thorleif Jóakimsson (Jackson), bls. 9092. Guðmundur Norðmann