ALMANAK 1941 65 upp með allri prýði. Þau eru: 1. Sigurbjörg, stjúpdóttir Guðmundar; 2. Guðmundur Kristján, dáinn fyrir fáum árum; 3. Guðný Ingibjörg, giftist fy hérlendum (Mrs. Hannah) nú ekkja, býr í Elstow, Sask.; 4. Kristján, í Winnipeg og 5. Conrad, á íöðurleifðinni. Guðmundur brá búi 1914, afhenti hann þá öll lönd sín sonum sínum og búslóðina skuldlausa (hafði hann auk heimilisréttarlandsins keypt 4 lönd). Bjuggu þau gömlu hjónin sér í húsi á eignarjörðinni. Guðmundur dó 2. marz 1935, en gamla konan býr enn í húsi sínu, en er nú mjög farin að heilsu. &£&&