ALMANAK 1941 69 Hann hefir verið heilsugóður, hefir einu sinni farið til læknis og var það 1940, og sagði lækn- irinn honum að hann væri í besta heilbrigðis- ástandi. Hann hefir verið léttur upp á fótinn alla æfi, hefir honum ekki þótt fyrir að bregða sér langa bæjarleið fótgangandi alt að þessu. Árið 1879 vann hann $50 verðlaun fyrir kappgöngu, fór hann 132 mílur á 24 klukkustundum með óþjála íslenzka skó á fótum, var það í Winnipegborg. Áttræður fór hann til fslands 1930 á Alþingis- hátíðina og varð ekki meint af, naut hann ferðar- innar eftir því sem best var ákosið og skemti sér vel. Hann er afbragðs góður Islendingur, sver sig í ættina bæði sem Islendingur og Austfirðingur, hann er ljós yfirlitum og drengilegur í sjón. Hann hefir lagt rækt við íslenzk blöð og bókmentir og styrk allan ísl. félagsskap, sækir kirkju og mann- fundi allra manna best. Mestan sinn bókakost hefir hann gefið til Þjóðræknisfélagsins. Heimili Sigurðar er í Baldur, Manitoba. Heill öldungnum níræða. (^Tq)