HEYRN OG SÝN Þjóðlegur fróðleikur Frásögn B. J. Hornfjörð, Árborg. Man. í fögru veðri, síðla dags þ. 7 september 1897, kom stórt gufuskip er hét "Alpha", frá Bergen, inn Hornaf jarðarós. Sökum þess, að ekki var kallað eftir hafnsögumanni, fór skipið of langt inn, er á höfnina kom, tók ekki til greina, (af ókunnug- leika) stóran hvítmálaðan stein, er stóð á sand- inum, sem inn fyrir mátti ekki fara. Festi skipið sig á fullri ferð á sandeyri, sem var dálítið fyrir innan áðurgreindan stein. Sökum hins mikla straums, sem þar er ,og sem Hornaf jarðarfljót gera sitt til að auka, safnaðist fljótt sandur að skipinu, svo sjáanlegt var, að ferð þess mundi vera á enda fyrst um sinn, þó skipstjóri þess segði það aldrei strand. Skip þetta var leiguskip Thor E. Tuliníusar, stórkaupmanns í Kaupmannahöfn; hafði það geysimikið lestarúm, en öll íbúð ofan dekks. Var það hlaðið vörum, sem áttu að fara á hafnir þaer, bæði á Austur- og Norðurlandi, sem Thor E. Túliníus hafði umsjón með. Fyrsti viðkomustað- ur þess var Hornfjörður, þar var þá kaupmaður Otto Túliníus, bróðir Þórarins Túliníusar. Eftir margar árangurslausar tilraunir til að losa skipið, varð að skipa upp vörunum þar á sandinn, og maður sendur til Otto Wathne á Seyð-