HELZTU VIÐBURÐIR meðal íslendinga í Vesturheimi 1939 1. okt.Hátíðleg minningarathöfn í Sam- bandskirkjunni í Winnipeg um séra Ragnar E. Kvaran, er lézt í Reykjavík 24. ágúst þ. á.; hann dvaldi vestan hafs 192233 og var forystumaður bæði í kirkjumálum (forseti Hins Sameinaða Kirkjufélags öll nefnd ár) og þjóðræknismálum. 8. okt.Danski kvennaklúbburinn (Danish- American Women's Club) í Los Angeles, Calif., heldur Nínu Sæmundsson myndhöggvara veglegt samsæti í tilefni þess, að henni var þá afhentur riddarakross Fálkaorðunnar, er konungur Islands og Danmerkur hafði sæmt hana fyrir hönd ís- landsstjórnar. 20.-22. oktFjölbreytt hátíðahöld að Moun- tain, N. Dak., í tilefni af 20 ára afmæli miðskólans og 58 ára afmæli alþýðuskólans þar, en hinn síðarnefnda stofnaði séra N. S. Thorláksson og var fyrsti kennarinn. 8. nóv.Norðmenn í Grand Forks, N. Dak., halda dr. Richard Beck, prófessor í norrænum fræðum við ríkisháskólann í Norður Dakota, fjöl- ment samsæti, er honum var afhentur riddara- kross St Ólafsorðunnar af fyrsta flokki, er Noregs- konungur hafði sæmt hann stuttu áður. 15. nóv.Séra Rúnólfi Marteinsson, skóla- stjóra; dr. Sigurði J. Jóhannesson skáldi og J. Magnúsi Bjarnason rithöfundi afhentir riddara- kross Fálkaorðunnar, er þeir höfðu nýlega sæmd- ir verið.