78 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: 15. nóv. Framkvæmdarnefnd Almenna sjúkrahússins í Winnipeg sendir J. J. Vopna þakk- arávarp fyrir 23 ára starf í þágu þeirrar stofnunar, en hann hafði átt sæti í fulltrúaráði sjúkrahússins samfleytt öll þau ár. 17. nóv.Vilhjálmur Þór, framkvæmdarstjóri Islendsdeildar heimssýningarinnar í New York, gerður heiðursborgari New York borgar og sæmd- ur heiðursmerki úr gulli af LaGuardia borgar- stjóra; síðar var tilkynt, að Thor Thors, alþingis- maður og formaður sýningarráðsins, hefði hlotið sömu heiðursviðurkenning, en hann er Vestur- íslendingum að góðu kunnur af fyrirlestrahöldum sínum víðsvegar í bygðum þeirra. 23. nóv.Þjóðræknisdeild stofnuð i Riverton, Man., með 34 félögum; forseti var kosinn Sveinn Thorvaldson, M.B.E. Um svipað ieyti einnig stofnuð þjóðræknisdeild í Árborg, Man., með all- mörgum félögum. Forseti: Gunnar Sæmundsson. 24. nóv.Við kosningar til bæjarráðs í Win- nipeg var Paul Bardal, eins og getið er um í Almanaki síðasta árs, endurkosinn fulltrúi í 2. kjördeild; samtímis var Victor B. Anderson kos- inn í bæjarráð fyrir sömu kjördeild. Hafði hann áður skipað þann sess. 28. nóv.Dr. M. B. Halldórson haldin fjöl- menn afmælisveizla á Marlborough gistihöllinni í Winnipeg, er hann varð sjötugur. Nóv.Dr. Hannes Hannesson (sonur John M. Hannesson, í Selkirk, Man.) veitt heiðursviður- kenningin "Freeman of the City of London". Hann er útskrifaður af Manitoba háskóla og las læknis- fræði við læknaskóla í Lundúnum; hann hefir verið kjörinn "Fellow of the Royal Society of Medicine".