ALMANAK 1941 79 1. des.Þjóðræknisdeild yngri Islendinga í Winnipeg hélt Fullveldisdag íslands hátíðlegan með fjölmennri veizlu og deginum sæmandi. Hefir deildin valið sér það ágæta og þakkarverða hlutverk, að minnast árlega þessa merkisdags í sögu hinnar íslenzku þjóðar. 1. des.Þjóðræknisfélag stofnað á íslandi t'1 samvinnu við Islendinga vestan hafs. Stjórnar- nefnd þess skipa alþingismennirnir Ásgeir Ás- geirsson, Jónas Jónsson og Thor Thors. 8. des.Islendingar í Chicago halda samsæti í tilefni af því, að þrír úr þeirra hópi: dr. C. H. Thordarson, raffræðingur; dr. Sveinbjörn John- son, prófessor við Illinois háskólann, og Árni Helgason, verksmiðjustjóri, höfðu verið sæmdir heiðursmerki Fálkaorðunnar. 22. des.Andrew Daníelsson, fyrv. ríkisþing- maður, hyltur í f jölmennu samsæti í Blaine, Wash., á sextugsafmæli sínu. Hann átti í samfleytt 10 ár sæti á löggjafarþingi Washington ríkis og hefir gengt friðdómara-embætti í 20 ár. Des.Dr. Kjartan Ingimundur Johnson valinn bæjarlæknir að Gimli, Man. Hann er sonur Ein- ars og Oddfríðar Johnson í Winnipeg og lauk prófi við læknaskólann þar 1937. 1940 21. janDr. P. H. T. Thorlakson og Gretti Leo Jóhannson, ræðismanni Dana og Islendinga í Manitoba-fylki, afhentir riddarakross Fálkaorð- unnar, er þeir höfðu litlu áður sæmdir verið. 28. jan.Johnson Memorial Hospital að Gimli, Man., formlega opnað og tekið til afnota; en sjúkrahús þetta ber nafn Islendingsins Björns B.