80 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: Johnson, útgerðarmanns þar í bæ, er lézt fyrir skömmu síðan. Lét hann eftir sig $15,000 sem grundvallar-upphæð að stofnun héraðssjúkrahúss að Gimli. 5. febr.Dr. Vilhjálmur Stefánsson landkönn- uður kosinn heiðursfélagi í The American Polar Society. Er það mjög fágæt heiðursviðurkenning. 8. febr.Fiðluhljómleikar þeir, er ungfrú Pearl Pálmason efndi til að kvöldi þess dags í sönghöll Winnipeg Auditorium, voru mikil sigur- vinning fyrir hina ungu listakonu; aðsóknin ágæt og hrifning áheyrenda að sama skapi. Ungfrú Snjólaug Sigurðsson annaðist undirspilið á slag- hörpu af mikilli prýði. 11. febr.Lézt á sjúkrahúsi í Montreal hinn ástsæli landsstjóri Canada, íslandsvinurinn Tweedsmuir lávarður, rúmlega 64 ára að aldri. Hann var heiðursverndari Þjóðræknisfélags ís- lendinga í Vesturheimi og lét á ýmsan annan hátt í ljósi góðhug sinn til þeirra, svo sem með heim- sókn sinni til Gimli fyrir þremur árum síðan og ræðu sinni við það tækifæri. 19.21. febr.Tuttugasta og fyrsta ársþing Þjóðræknisfélagsins haldið í Winnipeg við mikla aðsókn. Dr. Richard Beck, er verið hafði vara- forseti félagsins sex undanfarandi ár, kosinn for- seti, í stað dr. Rögnvaldar Péturssonar, er lézt stuttu áður en þing kom saman. Á fundi stjórn- arnefndar litlu síðar var Gísli Jónsson, prent- smiðjustjóri í Winnipeg, kosinn ritstjóri Tíma- rits félagsins, er dr. Rögnvaldur hafði annast frá því að ritið hóf göngu sína fyrir 20 árum síðan. 21. febr.Skáldkonan Laura Goodman Salv- erson, fröken Halldóra Bjarnadóttir og alþingis-