ALMANAK 1941 81 mennirnir Ásgeir Ásgeirsson, Jónas Jónsson og Thor Thors kosin heiðursfélagar í Þjóðræknis- félaginu. 1. marzTuttugu og fimm ára afmælis hins vinsæla elliheimilis "Betel" að Gimli minst með tilkomumikilli samkomu í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg. Samdægurs var afmælið einnig há- tíðlegt haldið á sjálfu elliheimilinu. 18. marzStefáni Einarssyni, ritstjóra Heims- kringlu, og konu hans Kristínu Guðmundsdóttur haldið fjölment samsæti í Goodtemplarahúsinu í Winnipeg, í tilefni af 25 ára giftingar-afmæli þeirra. 19. marzSöngkonan frú Rósa Hermannsson- Vernon frá Toronto (áður til heimilis í Winnipeg) hélt söngskemtun við hinn bezta orðstír í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, undir umsjá Jón Sig- urðssonar félagsins. Tvær systur söngkonunnar, frú Björg Isfeld og frá Ásta Hart, aðstoðuðu hana með ágætum slaghörpu- og fiðluleik. 23. marzTuttugu ára afmæli Thorkelsson- verksmiðjunnar í Winnipeg haldið hátíðlegt. Stofnandi fyrirtækisins, Soffonías Thorkelsson, tilkynnir, að sonur hans, Paul Thorkelsson, verði nú aðalframkvæmdarstjóri félagsins. 26. marzJoseph T. Thorson, K.C., sambands- þingmaður, endurkosinn með yfirgnæfandi meiri- hluta í Selkirk-kjördæmi. 26. marzSoffonías Thorkelsson, verksmiðju- stjóri og þáverandi forseti þjóðræknisdeildarinnar "Frón" í Winnipeg, kvaddur með samsæti á St. Regis gistihúsinu, áður en hann leggur af stað í Islandsferð til langdvalar á ættjörðinni.