82 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: 4. aprílEimskipafélag Islands býður þeim Ásmundi P. Jóhannsson, Árna Eggertsson og Jóni J. Bíldfell og frúm þeirra í heimsókn til Islands á komandi sumri í tilefni af aldarfjórðungs afmæli félagsins; þáðu tveir hinir fyrstnefndu og konur þeirra þetta sæmdarboð, en af för Bíldfells og frú- ar hans gat eigi orðið, vegna dvalar hans norður í Baffinlandi í þjónustu Canada-stjórnar. Er það í viðurkenningar skyni fyrir störf þeirra þremenn- inganna í þágu Eimskipafélagsins, að þeim var gert heimboð þetta. Komu heimfarendur þessir vestur aftur úr för sinni fyrri hluta ágústmánaðar. 5. aprílRichard Leonard Beck, 12 ára að aldri (sonur þeirra Jóhanns og Svanhvítar Beck í Winnipeg), skaraði fram úr í píanóspili í hljóm- listarsamkepni Manitobafylkis og vann verðlauna- bikarinn "Manitoba Music Teachers Association Trophy". Síðar á árinu (í júlí) hlaut hann hæstu einkunn allra þeirra í Manitoba, er tóku VIII. bekkjar próf í píanóspili við Toronto Conservatory of Music, og sæmdi sú víðkunna hljómlistarstofn- un hann heðiurspening úr silfri. 14. apríl400 ára afmælis Nýja-testamentis þýðingar Odds Gottskálkssonar minst við kvöld- guðsþjónustu í Fyrstu lútersku kirkju í Winni- peg; sóknarpresturinn, séra Valdimar J. Eylands, flutti minningarræðuna. 16. aprílBindindisfrömuðurinn Arinbjörn S. Bardal kosinn Stórtemplar á ársþingi Stórstúku Manitobafylkis og Norðvesturlandsins, er haldið var í Winnipeg, 1516. apríl; hafði hann áður gengt því embætti árum saman. 24. aprílKarlakór íslendinga í Winnipeg hlaut hið mesta lof fyrir söngsamkomu sína í hljómleikasal borgarinnar þá um kvöldið. Söng-