ALMANAK 1941 83 stjóri: Ragnar H. Ragnar, en Gunnar Erlendsson annaðist undirspil. Listakonurnar ungfrú Pearl Pálmason og ungfrú Snjólaug Sigurðsson aðstoð- uðu kórinn með snjöllum fiðlu- og slaghörpuleik. Var svo að orði kveðið, að samkoma þessi mætti "hiklaust teljast til stórviðburða á sviði söng- menningarlegrar þróunar meðal Islendinga vest- an hafs" (Lögberg). Aðsóknin var hin ágætasta. AprílSkáldkonan Laura Goodman Salver- son hlaut bókmentaverðlaun landstjórans í Can- ada fyrir bók sína: Coníessions of An Immigrant's Daughter; er þetta í annað sinn, sem þessi sæmd hefir fallið henni í skaut, því að henni voru veitt sömu verðlaun árið 1938 fyrir skáldsöguna The Dark Weaver. AprílOpinberlega tilkynt, að íslandsstjórn hafi skipað Vilhjálm Þór, framkvæmdarstjóra, aðalræðismann í Bandaríkjunum; er hann fyrsti maður, sem þá stöðu skipar að Islands hálfu. AprílTryggvi J. Oleson, M.A., (sonur þeirra G. J. Oleson og konu hans í Glenboro, Man.), er framhaldsnám stundar við Toronto háskólann, veitt Leonard námsverðlaunin svonefndu. Á hann hinn glæsilegasta námsferil að baki, er spáir góðu um framtíð hans sem kennara og fræðimanns. 4. maíDr. Richard Beck kosinn forseti fræðafélagsins, The Society for the Advancement of Scondinavian Study, á ársfundi þess í St. Olaf College, Northfield, Minnesota; hefir hann verið vara-forseti tvö undanfarin ár og einnig átt sæti í stjórnefndinni um þriggja ára skeið. 9. maíNemendur miðskólans að Mountain, N. Dak., hlutu hæsta vitnisburð fyrir Arbók skóla síns ("Mountain Memories"), í sínum flokki, í