ALMANAK 1941 85 Certificate in the Homemakers Course: Ólöf Árnason Thelma Evelyn Stefánsson Diploma in Dairying: Pálmi E. Johnson Diploma in Agriculture: Thorbergur Jóhannesson Guðrún Bjerring (dóttir þeirra S. O. Bjerring og konu hans í Winnipeg) stóð mjög framarlega í félagsmálum háskólastúdenta, en Richard Hannes. son (sonur þeirra Col. Marino Hannesson og konu hans í Winnipeg) vann f jölda námsverðlauna, svo að fáir hafa þar til jafns komist. 15. maíViolet Líndal (dóttir Hannesar og Sigrúnar Líndal í Winnipeg) hlaut hæstu einkunn við 2. árs próf á Manitoba háskólanum; vann hún Isbister verðlaunin öðru sinni og verðlaun fyrir framúrskarandi kunnáttu í enskri tungu. Hún stundar nú nám við háskólann í Californíu, Berk- eley, Cal. 19.24. maíFrú Marja Björnsson, forseti Hinna Sameinuðu íslenzku Frjálstrúar Kvenfélaga í Vesturheimi, sækir kvennaþing í Boston, Massa- chusetts, sem gestur Hins Ameríska Kvenfélags Únitara Sambandsins. Maður hennar, dr. Sveinn E. Björnsson, og séra Guðmundur Árnason, for- seti Sameinaða kirkjufélagsins íslenzka, sátu sam- tímis aðalþing Únitara, er haldið var þar í borg- inni. 22. maíÁrslokahátið Jóns Bjarnasonar skóla haldin í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg að við- stöddu margmenni. Var vandað til samkomunnar. Hér var einnig um sögulegan atburð að ræða,