86 ÖLAPUR S. THORGEIRSSON: lokaþáttinn í 27 ára sögu skólans, sem er um margt hin merkasta. Að örfáum árum undan- teknum hefir séra Runólfur Marteinsson verið skólastjórinn frá byrjun. MaíGunnar B. Björnsson, skattstjóri í Min- neapolis, Minn., þiggur heimboð til íslands af hálfu íslenzku stjórnarinnar og fór frú hans með honum í þá frægðarför. Hafði honum verið boðið árið áður, en orðið að hafna boðinu að því sinni. Hann var aðalræðumaður á Vestmannadeginum, er haldinn var í Reykjavík. Þau hjónin komu úr förinni snemma í ágúst. MaíBaldur Hannes Kristjánsson (sonur Hannesar kaupmanns Kristjánsson á Gimli og konu hans) veitt $600.00 námsverðlaun í hagfræði (Agricultural Economics) í Polytechnic Institute, Blacksburg, Virginia, í Bandaríkjunum. Hafði hann haustið áður, að afloknum ágætisprófum við Manitoba háskóla, hlotið námsstyrk, er veitti honum aðgang að fyrnefndri mentastofnun. MaíKom út í Toronto bókin Two Ways of Life (Tvennskonar Lífsstefnur), eftir W. J. Líndal, K.C., lögfræðing í Winnipeg; hefir hún vakið at- hygli og hlotið lofsamlega dóma canadiskra stór- blaða. 10. júníÁrni Helgason, verksmiðjustjóri í Chicago, sæmdur doktors-nafnbót í vísindum af Landbúnarháskólanum (State Agricultural Col- lege) í Fargo, N. Dak., en hann lauk þar námi í verkfræði árið 1924. 11. júníÞessir íslendingar útskrifuðust frá háskólanum í Norður Dakota: Bachelor oí Arts: Jóhann Kristinn Benson (frá Upham)