88 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: var háð þar í bæ f jórtánda ársþing hinna Samein- uðu Islenzku Frjálstrúar Kvenfélaga, er endur- kaus frú Marju Björnsson forseta sambandsins. JúníFrú P. H. T. Thorlakson( kona dr. P. H. T. Thorlakson í Winnipeg) endurkosin til þriggja ára í háskólaráð Manitoba-háskólans. JúníRobert Ellis Brandson, 17 ára gamall (sonur þeirra Einars Brandson og konu hans), er nám hefir stundað á hinum afarf jölsótta miðskóla, Fremont High School, í Los Angeles, Californía, veittur fjögra ára námsstyrkur við School of Journalism, University of Southern California. JúníJósep B. Skaptason, er í 19 ár hefir verið aðal-umsjónarmaður fiskimála Manitoba- fylkis, veitt lausn frá því starfi fyrir aldurs sakir. Hann er fæddur að Hnausum í Húnavatnssýslu, sonur þeirra Björns héraðslæknis Skaptasonar og konu hans Margrétar Stefánsdóttur. JúníÞessi íslenzkir nemendur útskrifuðust frá University of Washington (ríkisháskólanum) í Seattle og hlutu öll mentastigið B.A. (Bachelor of Arts): Petrina Aurora Ólafson (hæstu einkunn í enskum bókmentum) Margaret Thorlaksson Roller Benedikt Tryggvi Hallgrímsson JúníUngfrú Thruda Backman, (dóttir þeirra dr. K. J. Backman og konu hans í Winnipeg) lauk kennaraprófi í píanóspili með ágætiseinkunn við Toronto Conservatory of Music. 4. júlíTaflkappinn Andrew H. Pálmi, Jack- son, Michigan, kosinn formaður taflfélags þess ríkis á ellefta þingi félagsins, er haldið var í Battle Creek, Mich. Jafnhliða falið að annast um undir-