ALMANAK 1941 89 búning taflmótsins fyrir næsta ár. Kona hans var og endurkosin ritari og féhirðir félagsins. 4.7. júlíBandalag Lúterskra Kvenna held- ur 16. ársþing sitt í Argyle-bygð. Frú Ingibjörg J. Ólafsson endurkosin forseti. 12. júlíKvenfélag Sambandssafnaðar í Win- nipeg heiðrar frú Hólmfríði Pétursson( ekkju dr. Rögnv. Pétursson) með samsæti, í tilefni af því, að hún hafði litlu áður verið kosin æfifélagi í The General Alliance of Unitarian and Liberal Christ- ian Women of America. 22. júlíFrederick H. Fljózdal kosinn heið- ursforseti Bandalags Járnbrautarmanna (Brother- hood of Maintenance of Way Empolyees) á þingi þess í Quebec, Canada. Hann hafði gengt forseta- stöðu þessa mannmarga og öfluga félagsskapar samfleytt í 18 ár og baðst undan endurkosningu. (Um æfi hans og starfsferil, sjá Almanak 1936). 27. júlíSéra Jakob Jónsson lagði af stað til íslands frá Winnipeg, ásamt f jölskyldu sinni. Voru þau kvödd með virðulegu skilnaðarsamsæti í Sam- bandskirkjunni þar í borg. Síðan séra Jakob kom vestur árið 1934, hefir hann lengst af verið prestur Sambandssafnaðanna í Saskatchewan og verið áhrifamaður í íslenzkum félagsmálum hérlendis. JúlíWinifred Edith Björnson (dóttir þeirra dr. ölafs og Sigríðar Björnson í Winnipeg, nú bæði látin) vann $600.00 námsverðlaun við hina kunnu mentastofnun Wellesley College, Wellesley, Mass.. i Bandaríkjunum. JúlíIslandsvinurinn prófessor Watson Kirk- connell flutti alfarinn frá Winnipeg til Hamilton, Ontario, þar sem hann verður yfirkennari í ensk- um bókmentum við McMaster háskólann. Fylgja honum hugheilar þakkir og velfarnaðaróskir ís- lendinga.