90 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: 3. og 5. ágústIslendingadagarnir að Hnausum og Gimli vel sóttir að vanda. Um sama leyti eða áður á sumrinu voru þjóðhátíðar haldnar víðs- vegar meðal Islendinga í Vesturheimi, svo sem í Bellingham, Blaine og Seattle, Washington; Van- couver, B. C; Spanish Fork, Utah og Wynyard, Sask. 8. ágústThomas Thorleifson (sonur Gam- alíels Thorleifson og Katrínar konu hans (d. 1926) að Garðar, N. Dak.,) hlaut meistara-nafnbót (Master of Arts) við ríkisháskólann í Norður Dakota í verzlunar- og hagfræði. Fjallaði ritgerð hans um skattamál. Hann er nú aðstoðar-pró- fessor í nefndum fræðum við ríkisháskólann. Samdægurs hlaut Beatrice Ellen Stoering menta- stigið Bachelor of Science in Education; hún er íslenzk í móðurætt (af Mýrdals-ættinni að Garð- ar). ÁgústPrófessor Skúli Johnson, er verið hafði aðstoðar-prófessor í klassiskum fræðum við Manitoba háskólann um langt skeið, skipaður aðal-prófessor og formaður deildar háskólans í þeim fræðigreinum. ÁgústDr. Jón A. Bildfell, er gengt hafði læknisstörfum í Wynyard, Sask., flytur með fjölskyldu sinni norður til Baffinlands, þar sem hann verður umsjónarmaður sjúkrahúss fyrir hönd Canadastjórnar. 1. sept.Thor Thors alþingismaður verður aðalræðismaður Islands í Bandaríkjunum í stað Vilhjálms Þór, er þá tók við bankastjórastöðu á íslandi. 1. sept.Séra Sigurður Ólafsson og f jölskylda hans heiðruð með afar fjölmenni kveðjusamsæti í Árborg, Man., í tilefni af burtför þeirra til Sel- kirk, Man., þar sem séra Sigurður verður nú sókn-