92 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: 4. nóv.Árni B. Gíslason, héraðsdómari í New Ulm, Minnesota, endurkosinn gagnsóknar- laust. Hann er fæddur að Hauksstöðum í Vopna- firði, sonur Björns dannebrogsmanns Gíslasonar; fluttist barnungur með foreldrum sínum til Vestur- heims 1879 og ólst upp í Minneota, Minn. 4. nóv.Eftirfarandi íslenzkir lögfræðingar voru kosnir ríkislögsóknarar í N. Dak., við kosn- ingarnar, er fram fóru þann dag: bræðurnir Nels Johnson, Towner, og Einar Johnson, Lakota, hinn fyrnefndi fyrir McHenry Country og hinn síðar- nefndi fyrir Nelson County; J. M. Snowfield, Lang- don, fyrir Cavalier County og Oscar Bensen, Bot- tineau, yfrir Bottineau County. 16. nóv.Blaðamaðurinn og fréttaritarinn Edwin S. Johnson (sonur Egils og Sigurlaugar Johnson, er lengi áttu heima í Winnipeg) skipað- ur stríðsfréttaritari fréttafélagsins "The Canadian Press" í Ottawa. Hafði áður verið umsjónarmað- ur fréttastofunnar í London og gengt sömu stöðu í Toronto og New York. 22. nóv.Flugmaðurinn Elmer Johnson (son- ur Chris Johnson og konu hans í Winnipeg) einn af þeim flugmönnum, er björguðust úr flugslysi, er flugvél canadiska flugliðsins, með sex menn inn- anborðs, nauðlenti í skógarþykknum Quebec- fylkis. 26. nóv.Séra Runólfur Marteinsson skóla- stjóri heiðraður með f jölmennu samsæti í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg á sjötugsafmæli hans, jafnhliða því, sem hann hafði verið prestur í 41 ár og þau hjónin áttu 40 ára hjúskapar afmæli. Nóv.Arinbjörn S. Bardal endurkosinn gagn- sóknarlaust í 1. kjördeild í North Kildonan, Man. Hefir hann setið 15 ár í sveitarstjórn héraðs síns.