MANNALÁT FEBRÚAR 1939 10. Berglaug Guðmundsdóttir Ólafsson, í Glenboro, Man., ekkja Tryggva Ólafsson. Fædd að Flögu í Þistilfirði 25. jan. 1854. Foreldrar: Guðmundur Jónsson og Guðrún Jónsdóttir. Fluttist vestur um haf 1882. (Sjá Almanak 1935). MARZ 1939 13. St. Gilbertson (Sturlaugur Guðbrandsson), að heimili dóttur sinnar, Hólmfríðar Leland, í Minneota, Minn., 88 ára að aldri. Kona hans, Áslaug, dó fyrir nokkrum árum. Sturlaugur var móðurbróðir Dr. B. J. Brandson í Winnipeg. MAl 1939 25. Mrs. G. S. Sigurdson (Sigríður Jóakimsdóttir) í Minot, N. Dak. Fædd að Syðri-Tungu á Tjörnesi 18. sept. 1844. Fluttist vestur um haf með manni sínum, Guðna Stefáni Sigurðsson (d. 1909), árið 1878. Voru þau meðal brautryðjenda í Minneota-nýlendu Islend- inga í Minnesota og áttu þar heima til 1903, síðar í Charlson, N. Dak. 30. Stefanía Matthíasson, að heimili sínu í grend við Garðar, N. Dak. Fædd 17. sept. 1875, í Dane County, Wisconsin í Bandaríkjunum. Foreldrar: Kristinn Ólafsson og Katrín Ólafsdóttir, bæði úr Eyiafirði. Meðal barna hennar er Matthías tannlæknir í Ran- dolph, Wisconsin. ÁGÚST 1939 6. Halldóra Sveinsdóttir Eiríksson, í Minnewakan, Man. Fædd á Geirlandi á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu árið 1881. Foreldrar: Sveinn Davíðsson og Gróa Magnúsdóttir. Kom til Vesturheims 1904. SEPTEMBER 1939 29. Guðrún Guðmundsdóttir Thorvarðsson, í Minneapolis, Minn., ekkja Árna Thorvardsson frá Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd. Fædd í Skagafirði 10. okt. 1857; kom til Vesturheims af Akureyri ájið 1881.