ALMANAK 1941 95 Jón Ögmundsson og Sveinbjörg Sveinsdóttir. Kom vestur 1887. Kristín Þórarinsdóttir kona Ögmundar dó 1927. 2. Sigurður Pálsson, á elliheimilinu Betel að Gimli, Man., 83 ára gamall. Hann var frá Brennistöðum í Mýrar- sýslu; kom til Ameríku um aldamótin ásamt konu sinni Málfríði Sigurðardóttur (d. 1938). 3. Jónína Margrét Brown, dóttir þeirra Guðjóns Ingi- mundsson og konu hans í Winnipeg, Man., að heimili sínu í Dunvale, Ontario, 41 árs að aldri. 5. Hólmfríður Siverts, ekkja Sigurðar Erlendsson Sig- urðsson (Siverts), að heimili Wilberts og Hólmfríðar Thorsteinsson, i Selkirk, Man. Fædd 23. febr. 1844 að Hrappstöðum í Laxárdal í Dalasýslu. Foreldrar: Stein- dór Sigurðsson og Jóhanna Jónsdóttir. Fluttist til Vesturheims 1887 með manni sínum. 7. Sigurlaug Thorlakson, að heimili sínu í Chicago, 111., fyrrum kenslukona við Success verzlunarskólann í Winnipeg, Man. Foreldrar: Gunnar Guðmundsson og kona hans, er lengi áttu heima í grend við Moun- tain, N. Dak. 9. Matthildur Pálsdóttir Johnson, að heimili tengdason- ar síns og dóttur, Th. Sigurdson og konu hans, i grend við Hallson, N. Dak. Fædd í Eyjafirði i apríl 1848. Fluttist til Vesturheims 1883 með manni sínum, Árna Jónssyni (Johnson) úr Norður-Múlasýslu (d. 1936). 10. Ólöf Ingibjörg Ingólfsdóttir Jóhannsson, ekkja Eiríks Jóhannssonar frá Héraðsdal í Skagafirði, að heimili tengdasonar síns og dóttur, I. Thorvarðsson og konu hans, við Árborg, Man. Fædd 8. des. 1860. Foreldrar: Ingólfur Sigmundsson frá Skálá i Sléttuhlíð og Ingi- biörg Benjamínsdóttir frá Mársstöðum í Vatnsdal. Ölöf og Eiríkur (d. 21. maí 1939) fluttust vestur um haf 1889. (Sjá Almanak 1931). 12. Guðný Guðmundsdóttir Eyford. kona Guðmundar Ey- fords trésmíðameistara, að heimili sínu í Winnipeg, Man. Fædd 18. iúlí 1865 að Neðribrekku i Saurbæjar- hrepp í Dalasýslu. Foreldrar: Guðmundur Guð- mundsson smiður og Kristin Eggertsdóttir. Fluttist með manni sínum til Vesturheims árið 1903. 12. Helga María Guðmundsdóttir Benson, ekkia Benedikts S. Benson (d. 1935), að heimili sínu í Blaine, Wash. Fædd að Valdalæk á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu 14. okt. 1852. Kom vestur um haf 1883.